ÍAV vinnur nú að byggingu nýs brimvarnargarðs á suðursvæði Njarðvíkurhafnar fyrir Reykjaneshöfn.
Verkið felur í sér byggingu um 470 metra langs brimvarnargarðs sem mun bæta skjól og aðstæður í höfninni og styðja við áframhaldandi uppbyggingu hafnarsvæðisins.
Framkvæmdin er umfangsmikil og í garðinn fara tugþúsundir rúmmetra af kjarna og grjóti. Verkið er því bæði stórt jarðvinnu- og hafnargerðarverkefni þar sem reynsla ÍAV af krefjandi framkvæmdum við íslenskar aðstæður nýtist vel.
Áætlað er að verkið verði mikilvægur þáttur í framtíðaruppbyggingu hafnaraðstöðu á Suðurnesjum.
