Í desember 2025 undirrituðu Íslenskir aðalverktakar hf. og Veitur ohf. rammasamning um þjónustu og viðhald veitukerfa á höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn tók gildi 16. desember 2025 og gildir í 3,5 ár, með heimild til framlengingar um allt að fjögur ár til viðbótar.
Samningurinn nær til framkvæmda í öllum veitukerfum Veitna, þ.e. rafmagni allt að 33 kV, heitu vatni, köldu vatni og fráveitu. Undir hann falla jarðvinna og yfirborðsfrágangur, nýlagning, endurnýjun og viðhald veitukerfa, heimlagnir og ástandsskoðun inntaka, uppsetning og tenging spennistöðva og götuskápa, auk bilana- og viðhaldsþjónustu.
Verkefnin verða unnin í Reykjavík, á Seltjarnarnesi, í Kópavogi, Álftanesi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Samningurinn gerir ríkar kröfur um gæði, öryggi og umhverfismál, þar sem frammistaða verktaka er mæld með reglubundnu verktakamati.
