Íslenskir aðalverktakar hf. hafa undirritað samning við Reykjaneshöfn um að reisa tæplega 500 metra langan brimvarnargarð sunnan við Njarðvíkurhöfn. Samningurinn var undirritaður um miðjan janúar eftir samþykki bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
Brimvarnargarðurinn, sem verður 470 metrar að lengd, á að mynda skjól fyrir núverandi hafnarmannvirki og bæta verulega aðstöðu í höfninni.
„Við hjá ÍAV hlökkum mikið til að vinna þetta verk með Reykjaneshöfn og leggja okkar af mörkum til að styrkja hafnarmannvirki á svæðinu,” segir Þóroddur Ottesen, forstjóri ÍAV.
Framkvæmdatími er áætlaður 18 mánuðir en gæti orðið styttri. Þegar verkinu lýkur mun Njarðvíkurhöfn verða ein af skjólbetri höfnum landsins með öruggri innsiglingu í hvaða veðrum sem er.
Endurbætur á höfninni styðja við framtíðarsýn Reykjaneshafnar um að Njarðvíkurhöfn verði aðalfiskiskipa- og þjónustuhöfn svæðisins. Breyttar hafnaraðstæður skapa grundvöll fyrir uppbyggingu annarrar starfsemi, þar á meðal Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur og aðstöðu fyrir skipastól Landhelgisgæslu Íslands.









