Íslenskir aðalverktakar hafa lokið framkvæmdum við Vör, nýja fjölnota farþegamiðstöð Faxaflóahafna við Viðeyjarsund í Reykjavík. Húsið var formlega opnaðtekið í notkun föstudaginn 29. maí þegar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri Reykjavíkur og Gunnar Tryggvason hafnarstjóri Faxaflóahafna klipptu á borðann við hátíðlega athöfn.
ÍAV skilaði verkefninu með braVÖR á réttum tíma, þökk sé góðri samvinnu allra aðila sem komu að framkvæmdinni. Verkefnið var umfangsmikið og krafðist vandaðrar samhæfingar hönnuða, verkkaupa, undirverktaka, eftirlits og starfsfólks ÍAV. Með fagmennsku, lausnamiðaðri nálgun og öflugri verkstjórn tókst að ljúka framkvæmdum þannig að mannvirkið væri tilbúið fyrir komu fyrsta skemmtiferðaskipsins þetta árið.
Vör markar tímamót í móttöku skemmtiferðaskipa í Reykjavík og mun bæta landamæraþjónustu, öryggi og aðstöðu fyrir farþega sem koma til og frá landinu. Yfir sumartímann verður húsið nýtt sem farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip, en utan annatíma, frá október og út mars, verður það vettvangur fjölbreyttra viðburða í glæsilegum veislusal á 2.hæð húsins. Þar er rúm fyirr allt að 2.000 veislugesti og um 900 manns í sæti.
Nafnið Vör var valið í opinni nafnasamkeppni þar sem bárust yfir 6.000 tillögur. Nafnið vísar til lendingar og skjóls við sjóinn og tengir bygginguna þannig við íslenska hafnarsögu og hlutverk hússins sem móttökustað ferðalanga.
Við hjá ÍAV erum stolt af því að hafa tekið þátt í þessu mikilvæga verkefni fyrir Faxaflóahafnir og Reykjavíkurborg. Vör er glæsileg viðbót við hafnarsvæðið og gott dæmi um hvernig fagleg framkvæmd, traust samstarf og skýr markmið skila sér í mannvirki sem mun þjóna borginni og gestum hennar til framtíðar.









