Reykjanesbrautin opnuð á undan áætlun

22. desember 2025
Reykjanesbrautin opnuð – ÍAV afhendir verkefnið á undan áætlun

Reykjanesbrautin opnuð – ÍAV afhendir verkefnið á undan áætlun

Íslenskir aðalverktakar hafa lokið framkvæmdum við síðasta áfanga tvöföldunar Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns. Með afhendingu þessa kafla er Reykjanesbrautin nú tvöföld alla leið frá Hafnarfirði til Reykjanesbæjar – mikilvægur áfangi í samgöngusögu landsins. Sérstaklega er ánægjulegt að verkið var afhent á undan áætlun, þrátt fyrir umfang og flókið framkvæmdarumhverfi.

Formleg opnun fór fram 11. desember 2025 að viðstöddum innviðaráðherra, forstjóra Vegagerðarinnar og bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Um er að ræða einn fjölfarnasta veg landsins, þar sem meðaltalsumferð er um 21.500 bílar á dag. Tvöföldunin eykur umferðaröryggi til muna með aðskilnaði akstursstefna, bætir flæði og dregur úr líkum á alvarlegum slysum.

Verkefnið fól í sér breikkun Reykjanesbrautar á 5,6 km kafla í 2+2 akreinar, gerð mislægra gatnamóta, nýjar vegtengingar, undirgöng fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk eftirlitsstaða fyrir umferðareftirlit. Framkvæmdir hófust eftir samningsgerð við Vegagerðina vorið 2023 og gengu vel frá upphafi, sem gerði kleift að opna veginn fyrir umferð mun fyrr en upphaflega var ráðgert.

Samfelld saga – frá steyptri braut til nútíma hraðbrautar

Saga Reykjanesbrautarinnar spannar meira en heila öld, en nútímaleg vegagerð hófst af krafti á sjötta áratug síðustu aldar. Háværar raddir um að leggja nýjan veg með bundnu slitlagi fóru að heyrast árið 1958 þegar vegamálastjóri lýsti því yfir að með tilkomu sementsverksmiðjunnar á Akranesi væri Suðurnesjavegurinn líklegur til að verða steyptur. Í lok árs 1960 hófust framkvæmdir við nýjan Suðurnesjaveg, sem síðar hlaut nafnið Reykjanesbraut.

Vegagerðin sá um undirvinnu að Kúagerði, en þegar þangað var komið tóku Íslenskir aðalverktakar við verkinu, kláruðu undirbyggingu vegarins og sáu jafnframt um að steypa veginn. Vegurinn var formlega opnaður 26. október 1965 eftir fimm ára framkvæmdatíma og markaði tímamót sem fyrsti steypti þjóðvegur landsins.

Sú staðreynd að ÍAV hafi komið að upphafi steyptrar Reykjanesbrautar og nú, áratugum síðar, afhendi síðasta áfanga tvöföldunarinnar, undirstrikar sterka og samfella tengingu fyrirtækisins við eina mikilvægustu samgönguæð Íslands.

Verkefni sem skiptir máli

Afhending Reykjanesbrautarinnar í núverandi mynd er stórt skref fyrir öryggi, atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu. Fyrir ÍAV er það sérstakt ánægjuefni að ljúka verkefninu á undan áætlun, í nánu og farsælu samstarfi við Vegagerðina og aðra hagaðila.

Með þessu verkefni hefur verið lögð traust undirstaða að öruggum, greiðum og framtíðarmiðuðum samgöngum – á vegi sem ÍAV hefur mótað allt frá upphafi til dagsins í dag.