Verktakar sem hafa unnið saman við gerð varnargarða við Grindavík og Svartsengi síðan í nóvember 2023 hafa tekið höndum saman og verða aðalstyrktaraðili Knattspyrnudeildar Ungmennafélags Grindavíkur (UMFG). Að auki hafa stærstu birgjar þeirra einnig gengið til liðs við þetta verkefni,
sem er einstakt dæmi um samhug og samstöðu í kjölfar mikilla áskorana sem samfélagið í Grindavík hefur gengið í gegnum.
UMFG missti alla sína styrktaraðila í kjölfar náttúruhamfaranna þar sem þeir voru flestir úr Grindavík og urðu fyrir jafn miklum áhrifum og félagið sjálft. Í ljósi þess tóku eftirtaldir verktakar og birgjar sameiginlega ákvörðun um að styðja við UMFG og hjálpa félaginu að endurreisa starfsemi sína:
Íslenskir aðalverktakar
Ístak
Sveinsverk
Ingileifur Jónsson
Fossvogur
Hefilverk
Skeljungur
Klettur
Kraftvélar
Armar
Berg Verktakar
Samstarfið hefur einnig verið tákngert með sérstöku lógói sem vísar í form varnargarðanna og bókstafinn „G“ fyrir Grindavík, sem undirstrikar tengslin á milli þessara aðila og samfélagsins sem þeir styðja.Hönnunarstofan Kolofon og Baldur Kristjánsson ljósmyndari lögðu verkefninu lið með hönnun merkis og myndatöku.
ÍAV óskar UMFG góðs gengis á komandi leiktíð, Áfram Grindavík!