Fyrsta skóflustunga nýrrar Þjóðarhallar var tekin í dag og hafa mörg okkar beðið þessarar stundar lengi og með töluverðri eftirvæntingu. Þjóðarhöll er ekki bara bygging heldur einnig bylting í aðstöðu til æfinga og keppni fyrir íþróttafólkið okkar, þjálfara, sjálfboðaliða og til framtíðarinnar, barnanna sem eiga sér stóra drauma um afrek á íþróttasviðinu. Með þessari framkvæmd fá þau það sem þau eiga skilið – aðstöðu í fremstu röð. Sem og alla þá sem eiga eftir að koma hingað á stórviðburði næstu áratugi.
ÍAV hefur í rúm sjötíu ár byggt flókin og krefjandi mannvirki á Íslandi. Við höfum lært að til þess að svona stórt verkefni heppnist vel þarf að ríkja traust og opin samskipti.
ÍAV tekur að sér bæði hönnun og byggingu hússins. Við göngum ekki ein til þessa verks. Með okkur er öflugur hópur: ASK arkitektar, COWI, LPO arkitekter, Ísloft, EOH og Landhönnun. Saman berum við ábyrgð á bæði hönnun og byggingu hússins í nánu samstarfi við fulltrúa Þjóðarhallar. Þannig getum við unnið með verkkaupa, hönnuðum og ráðgjöfum frá fyrsta degi og tekið ákvarðanir í sameiningu. Þetta skilar betri lausnum og færri óvæntum uppákomum.
Mörg hafa lagt hönd á plóg og er ÍAV þakklátt fyrir gott samstarf með verkkaupa, hönnuðum og arkitektum, FSRE, Ríki og borg og öllum sem hafa komið að undirbúningnum.
Verkefnið er stórt og það verða án efa áskoranir á leiðinni, en við mætum þeim af auðmýkt og með fagmennsku. Við byggjum í miðjum Laugardal. Laugardalshöll, Frjálsíþróttahöllin, skólarnir og íþróttafélögin í kring verða í fullri starfsemi allan þann tíma sem við vinnum. Það er krefjandi og við tökum það alvarlega. Öryggi barna, íþróttafólks, gesta og starfsfólks verður alltaf í fyrsta sæti. Við munum leggja okkur fram um að halda nágrönnum og notendum svæðisins vel upplýstum, og við viljum þakka fyrirfram fyrir þá þolinmæði sem framkvæmdir af þessari stærð kalla óhjákvæmilega á.
Markmiðið er skýrt: að afhenda fullbúna Þjóðarhöll í lok janúar 2030, í tæka tíð fyrir heimsmeistaramótið í handknattleik 2031. Tímaáætlunin er metnaðarfull, en við erum vel undirbúin og hlökkum til verksins. Hér verður bygging sem verður þjóðinni til sóma sem við getum öll verið stolt af.












